Jóhann Berg meiddur - Aron Einar byrjar

Aron Einar Gunnarsson til varnar gegn Sadio Mané í haust.
Aron Einar Gunnarsson til varnar gegn Sadio Mané í haust. AFP

Jóhann Berg Guðmundsson er meiddur og því ekki í leikmannahópi Burnley sem mætir Tottenham í ensku úrvalsdeildinni nú klukkan 15 á Wembley. Aron Einar Gunnarsson er í byrjunarliði Cardiff sem heimsækir Watford á sama tíma.

Jóhann Berg var valinn maður leiksins um síðustu helgi er Burnley vann langþráðan sigur á Huddersfield, 1:0, en varð að draga sig úr hópi í dag vegna meiðslanna. Aron Einar er aftur á móti á sínum stað í liði Cardiff sem hefur verið að hala inn stig eftir að hann sneri aftur úr meiðslum.

Cardiff var án sigurs í deildinni áður en Aron sneri aftur en hefur nú fengið 12 stig úr síðustu átta leikjum.

Jóhann Berg Guðmundsson er ekki með í dag vegna meiðsla.
Jóhann Berg Guðmundsson er ekki með í dag vegna meiðsla. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert