Spilað í enska deildabikarnum í vikunni

Christian Eriksen fagnar marki sínu gegn Burnley um helgina en …
Christian Eriksen fagnar marki sínu gegn Burnley um helgina en Tottenham sækir Arsenal heim í deildabikarnum. AFP

Spilað verður í átta liða úrslitum ensku deildabikarkeppninnar í knattspyrnu í vikunni þar sem stórleikurinn verður viðureign Lundúnaliðanna Arsenal og Tottenham.

Arsenal tekur á móti Tottenham á Emirates Stadium á miðvikudagskvöld. Manchester City á titil að verja en liðið sækir Leicester heim.

Leikirnir í átta liða úrslitunum:

Þriðjudagur:
19.45 Leicester - Manchester City
19.45 Middlesbrough - Burton Albion

Miðvikudagur:
19.45 Arsenal - Tottenham
19.45 Chelsea - Bournemouth

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert