United heldur Martial til 2020

Anthony Martial hefur leikið vel í vetur en liði United …
Anthony Martial hefur leikið vel í vetur en liði United vegnað illa. AFP

Manchester United hefur nýtt klásúlu í samningi við Anthony Martial til þess að framlengja samninginn um eitt ár, til ársins 2020.

Martial hefði að öðrum kosti getað farið frítt frá félaginu næsta sumar, en þessi 23 ára gamli Frakki hefur verið meðal bestu leikmanna United í vetur og meðal annars skorað sjö mörk í 13 deildarleikjum.

Martial er á sínu fjórða keppnistímabili með United eftir að hann kom til félagsins frá Monaco. Samkvæmt fréttum enskra miðla á borð við Independent standa nú yfir viðræður á milli aðila um nýjan samning til lengri tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert