Klopp: Er framúrskarandi knattspyrnustjóri

José Mourinho og Jürgen Klopp takast í hendur eftir leik …
José Mourinho og Jürgen Klopp takast í hendur eftir leik Liverpool og Manchester United á sunndaginn. AFP

Það má segja að Jürgen Klopp knattspyrnustjóri Liverpool hafi rekið síðasta naglann í kistuna hjá José Mourinho en lærisveinar Klopps léku United-liðið grátt þegar þau áttust við í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn.

Þetta var síðasti leikur Manchester United undir stjórn Mourinho, sem í morgun var rekinn úr starfi knattspyrnustjóra félagsins.

„Hann á alla mína virðingu og er ótrúlega sigursæll keppnismaður. Ég get ímyndað mér að síðustu mánuðir hafi ekki verið skemmtilegir og þá sérstaklega fyrir hann. Það er ekki gaman að fá allar þessar spurningar á hverjum degi.

En það getur engið tekið frá honum allt það sem hann hefur unnið. Ég vona að hann hafi þetta í huga þegar hann fer en ekki nokkra aðra hluti sem hafa átt sér stað á síðustu mánuðum. Hann er framúrskarandi knattspyrnustjóri,“ sagði Klopp við fréttamenn í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert