Twitter logar eftir brottrekstur Mourinho

Það hafa margir tjáð sig á twiter um brottrekstur José Mourinho frá Manchester United en eftir tvö og hálft ár í starfi hjá Manchester-liðinu ákvað stjórn félagsins að reka Portúgalann.

Margir stuðningsmenn Manchester United hafa kallað eftir því að Mourinho yrði rekinn en gengi liðsins á tímabilinu hefur verið afar slakt og tapleikur liðsins á móti Liverpool um nýliðna helgi virðist hafa verið kornið sem fyllti mælinn hjá stjórn Manchester United enda var frammistaða liðsins hrein hörmung.

José Mourinho.
José Mourinho. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert