Higuain að koma til Chelsea

Gonzalo Higuain er á leið til Chelsea.
Gonzalo Higuain er á leið til Chelsea. AFP

Chelsea hefur náð samkomulagi við Ítalíumeistara Juventus um að fá argentínska sóknarmanninn Gonzalo Higuain að láni út leiktíðina samkvæmt heimildum Sky Sports.

Higuain leikur sem lánsmaður með AC Milan á Ítalíu en hann mun ganga í raðir Chelsea og samkvæmt heimildum Sky Sports verða ákvæði í lánssamningi Chelsea og Juventus um að Chelsea geti haldið Higuain í eitt ár eftir að tímabilinu lýkur í vor.

Higuain er 31 árs gamall og hefur leikið með Real Madrid, Juventus og Napoli þar sem hann sallaði inn mörkum. Hann á að baki 75 leiki með argentínska landsliðinu og hefur í þeim skorað 31 mark.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert