Jón Daði og félagar áfram í fallsæti

Jón Daði Böðvarsson í baráttunni í dag.
Jón Daði Böðvarsson í baráttunni í dag. Ljósmynd/@dcfcofficial

Jón Daði Böðvarsson og liðsfélagar hans hjá Reading eru áfram í fallsæti ensku B-deildarinnar í fótbolta eftir 1:2-tap fyrir Derby í dag. Jón Daði var í byrjunarliði Reading og spilaði fyrstu 63 mínúturnar. 

Birkir Bjarnason var sömuleiðis í byrjunarliði Aston Villa sem gerði 2:2-jafntefli við Hull á heimavelli. Birkir spilaði fyrstu 75 mínúturnar á miðjunni hjá Villa. 

Reading er í 22. sæti, tveimur stigum frá Rotherham sem er í síðasta örugga sæti deildarinnar. Aston Villa er í 12. sæti með 39 stig, sjö stigum frá umspilssætum um sæti í efstu deild. 

Birkir Bjarnason í skallaeinvígi í dag.
Birkir Bjarnason í skallaeinvígi í dag. Ljósmynd/@astonvilla
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert