Sex leikmenn hafa skorað fleiri mörk heldur en Gylfi Þór Sigurðsson í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.
Gylfi skoraði sitt 9. mark í deildinni í gær þegar hann lagaði stöðuna fyrir Everton í uppbótartíma í 2:1 tapi á móti Southampton á St.Marys. Gylfi jafnaði þar með samherja sinn, Brasilíumanninn Richarlison, en þeir eru markahæstu leikmenn Everton á tímabilinu. Og þá jafnaði Gylfi Eið Smára Gudjohnsen yfir fjölda marka í ensku úrvalsdeildinni en þetta var 55. mark hans í deildinni.
Mohamed Salah er orðinn markahæstur og situr einn í því sæti. Egyptinn skoraði tvö mörk í 4:3 sigri Liverpool gegn Crystal Palace í gær og hefur þar með skorað 16 mörk.
Markahæstu leikmenn:
16 - Mohamed Salah, Liverpool
14 - Harry Kane, Tottenham
14 - Pierre-Emerick Aubameyang, Arsenal
10 - Sergio Agüero, Manchester City
10 - Eden Hazard, Chelsea
10 - Callum Wilson, Bournemouth
9 - Gylfi Þór Sigurðsson, Everton
9 - Roberto Firmino, Liverpool
9 - Richarlison, Everton
9 - Raheem Sterling, Manchester City
9 - Sadio Mané, Liverpool