Bolasie kominn aftur til Everton

Yannick Bolasie í leik með Everton.
Yannick Bolasie í leik með Everton. AFP

Kantmaðurinn Yannick Bolasie hefur ákveðið snúa til baka til Everton frá enska B-deildarliðinu Aston Villa þar sem hann hefur leikið sem lánsmaður.

Bolasie var í sumar lánaður til Aston Villa og átti lánssamningurinn að gilda út tímabilið. En nú hefur leikmaðurinn ákveðið að ljúka dvöl sinni hjá Villa þar sem hann hefur verið liðsfélagi Birkis Bjarnasonar.

Fram kemur á Twitter-síðu Everton að Bolasie sé kominn aftur til félagsins. Hann lék 21 leik með Aston Villa í ensku B-deildinni og skoraði í þeim tvö mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert