Cole kominn til Derby

Ashley Cole.
Ashley Cole. AFP

Bakvörðurinn reyndi Ashley Cole er genginn í raðir enska B-deildarliðsins Derby County.

Cole, sem er 38 ára gamall, skrifaði undir sex mánaða samning við Derby og mun leika þar undir stjórn síns gamla liðsfélaga úr Chelsea, Frank Lampard.

Cole lék síðast með bandaríska liðinu LA Galaxy en hann hóf feril sinn með Arsenal og lék einnig með Crystal Palace, Chelsea, Roma og LA Galaxy.

Hann varð í tvígang Englandsmeistari með Arsenal og einu sinni með Chelsea og þá lék hann 107 leiki með enska landsliðinu.

Derby er í sjötta sæti í ensku B-deildinni en liðin í 3.-6. sæti fara í umspil um eitt laust sæti í ensku úrvalsdeildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert