McTominay framlengdi við United

Scott McTominay handsalar samninginn við Ole Gunnar Solskjær.
Scott McTominay handsalar samninginn við Ole Gunnar Solskjær. Ljósmynd/Twitter-síða Manchester United

Skoski miðjumaðurinn Scott McTominay framlengdi í dag samning sinn við Manchester United.

Scott McTominay er nú samningsbundinn Manchester-liðinu til ársins 2023 en félagið hefur möguleika á að bæta einu ári til viðbótar við samninginn.

McTominay er 22 ára gamall og hefur komið við sögu í sjö leikjum Manchester United í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. Hann lék sína fyrstu landsleiki á síðasta ári en hann lék fimm leiki með skoska landsliðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert