Meiðslavandræði Tottenham versna

Dele Alli fær aðhlynningu.
Dele Alli fær aðhlynningu. AFP

Knattspyrnumaðurinn Dele Alli tognaði í læri í 2:1-sigri Tottenham á Fulham í ensku úrvalsdeildinni í sunnudaginn var. Hann verður frá keppni fram í mars. Alli þurfti að fara af velli í síðari hálfleik vegna meiðslanna og missir hann af mikilvægum leikjum hjá Tottenham á næstu vikum.

Alli missir m.a. af tveimur leikjum við Chelsea; annars vegar í deildinni og hins vegar í undanúrslitum deildabikarsins. Þá missir hann einnig af fyrri leik Tottenham á móti Dortmund í Meistaradeild Evrópu. 

Óvíst er hvort Alli verði búinn að jafna sig fyrir deildarleik gegn Arsenal og síðari leikinn á móti Dortmund í byrjun mars. Harry Kane er einnig að glíma við meiðsli og missir væntanlega af sömu leikjum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert