Chelsea eða Tottenham í úrslit?

Jorginho og Pedro reyna að ná boltanum gegn Danny Rose.
Jorginho og Pedro reyna að ná boltanum gegn Danny Rose. AFP

Í kvöld ræðst hvort það verður Chelsea eða Tottenham sem mætir Manchester City í úrslitaleik enska deildabikarsins í knattspyrnu á Wembley 24. febrúar.

Tottenham vann fyrri leikinn við Chelsea 1:0. Liðin mætast aftur í kvöld á heimavelli Chelsea, en frá fyrri leiknum hefur Tottenham til að mynda misst Harry Kane og Dele Alli í meiðsli. Það var einmitt Kane sem skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu í fyrri leiknum.

Í hinni viðureign undanúrslita keppninnar vann Manchester City samanlagðan 10:0 sigur á Burton og komst þannig í úrslitin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert