Leikmaður Chelsea varð fyrir kynþáttafordómum

Callum Hudson-Odoi.
Callum Hudson-Odoi. AFP

Chelsea hefur staðfest að leikmaður liðsins Callum Hudson-Odoi hafi orðið fyrir kynþáttafordómum í leiknum á móti Dinamo Kiev í Evrópudeildinni á dögunum. 

Á lokakafla leiksins gáfu áhorfendur frá sér apahljóð sem er ekki óþekkt hjá fótboltabullum. Kom leikmaðurinn því á framfæri við fyrirliða Chelsea, Cesar Azpilicueta, sem greindi dómara leiksins frá atvikinu sem og eftirlitsmanni UEFA. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert