Afmæliskveðja til Guðna með glæsimarki - myndskeið

Guðni Bergsson í baráttu við Ray Parlour í leik Bolton …
Guðni Bergsson í baráttu við Ray Parlour í leik Bolton og Arsenal í úrvalsdeildinni. AFP

Guðni Bergsson formaður Knattspyrnusambands Íslands fagnar 54 ára afmæli sínu í dag og hann fær skemmtilega kveðju á Twitter frá sínu gamla félagi á Englandi, Bolton Wanderers.

Guðni spilaði 448 deildaleiki á löngum ferli, þar af 341 í tveimur efstu deildum Englands og 202 þeirra í úrvalsdeildinni, með Bolton og Tottenham. Hann gerði 10 mörk í úrvalsdeildinni og eitt þeirra, fyrir Bolton gegn Barnsley árið 1997, var ekki af verri endanum.

Bolton sendi honum kveðjuna með myndskeiði af markinu:

Guðni Bergsson formaður KSÍ átti langan feril í fótboltanum á …
Guðni Bergsson formaður KSÍ átti langan feril í fótboltanum á Englandi. mbl.is/Hari
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert