Chelsea hafði betur gegn Barcelona

Leikmenn Chelsea fagna öðru marki Ross Barkley gegn Barcelona í …
Leikmenn Chelsea fagna öðru marki Ross Barkley gegn Barcelona í dag. AFP

Enska knattspyrnufélagið Chelsea vann 2:1-sigur gegn spænska stórliðinu Barcelona í æfingaleik á í Saitama í Japan í dag. Tammy Abraham kom Chelsea yfir á 34. mínútu og staðan því 1:0 í hálfleik.

Ross Barkley bætti við öðru marki Chelsea, tíu mínútum fyrir leikslok, áður en Ivan Rakitic minnkaði muninn fyrir Barcelona með marki í uppbótartíma. Bæði lið stilltu upp sterkum liðum í leiknum en Lionel Messi og Luis Suárez voru ekki með Barcelona í dag.

Þetta var fjórði leikur Chelsea á undirbúningstímabilinu en liðið hefur unnið tvo leiki, gert eitt jafntefli og tapað einum leik. Næstu leikur liðsins verður æfingaleikur gegn Reading þann 28. júlí næstkomandi á Madejski-vellinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert