Fimmti sigur Newcastle á tímabilinu

Jonjo Shelvey fagnar marki sínu ásamt liðsfélögum sínum gegn Sheffield …
Jonjo Shelvey fagnar marki sínu ásamt liðsfélögum sínum gegn Sheffield United í kvöld. AFP

Newcastle er komið í ellefta sæti ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir 2:0-útisigur gegn Sheffield United í kvöld. Leiknum lauk með 2:0-sigri Newcastle en Allan Sant-Maximin kom Newcastle yfir strax á 15. mínútu og staðan því 1:0 í hálfleik.

Jonjo Shelvey bætti við öðru marki Newcastle á 70. mínútu og þar við sat. Newcastle er með 19 stig í ellefta sætinu, jafn mörg stig og Arsenal og Sheffield United og einu stigi minna en Tottenham eftir fyrstu fimmtán umferðir tímabilsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert