Lykilmaður nálgast endurkomu

Antonio Rüdiger er á meðal bestu varnarmanna Chelsea.
Antonio Rüdiger er á meðal bestu varnarmanna Chelsea. AFP

Antonio Rüdiger, varnarmaður enska knattspyrnufélagsins Chelsea, nálgast nú endurkomu á knattspyrnuvöllinn en það eru enskir fjölmiðlar sem greina frá þessu. Rüdiger hefur verið fastamaður í liði Chelsea frá því hann gekk til liðs við félagið frá Roma sumarið 2017.

Rüdiger hefur hins vegar ekkert spilað með Chelsea síðan í september en hann hefur verið að glíma við erfiða tognun aftan í læri. Hann þurfti að gangast undir aðgerð vegna meiðslanna í síðasta mánuði en er nú óðum að koma til.

Enskir fjölmiðlar greina frá því að Rüdiger gæti verið í hópi um helgina þegar Chelsea heimsækir Everton á Goodison Park í ensku úrvalsdeildinni. Chelsea er í fjórða sæti ensku deildarinnar með 29 stig, 14 stigum minna en topplið Liverpool.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert