Leikur toppliðsins sýndur beint á mbl.is

Jürgen Klopp og Virgil van Dijk mæta Bournemouth í dag.
Jürgen Klopp og Virgil van Dijk mæta Bournemouth í dag. AFP

Bournemouth tekur á móti Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á Vitality-vellinum í Bournemouth í dag klukkan 15.

Leikurinn er hluti ef sextándu umferð deildarinnar en Bournemouth er í fjórtánda sæti deildarinnar með 16 stig, tveimur stigum frá fallsæti. Liverpool er á toppnum með 43 stig og hefur átta stiga forskot á Leicester sem er í öðru sætinu.

Leikurinn verður sýndur beint á mbl.is/enski en hægt er að nálgast útsendinguna með því að smella hér.

Þá verður leikurinn einnig í beinni textalýsingu á mbl.is/sport, ásamt tveimur öðrum leikjum sem hefjast á sama tíma klukkan 15. Lýsinguna má nálgast hér fyrir neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert