Leicester vann sinn níunda sigur í röð er liðið vann 4:1-sigur á grönnum sínum í Aston Villa á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær.
Jamie Vardy og Kelechi Iheanacho komu Leicester í 2:0, áður en Jack Grealish minnkaði muninn í 2:1 í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Jonny Evans kom Leicester aftur tveimur mörkum yfir í upphafi seinni hálfleiks, áður en Vardy skoraði sitt annað mark og tryggði Leicester góðan sigur.
Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.