Leicester mistókst að saxa á forystu Liverpool á toppi ensku úrvasdeildarinnar í fótbolta þegar nýliðar Norwich komu í heimsókn á King Power-leikvanginn.
Finninn Teemu Pukki kom gestunum yfir á 26. mínútu áður en Tim Krul skoraði sjálfsmark en heimamönnum tókst ekki að kreista inn sigurmark þrátt fyrir ágætar tilraunir undir lok leiks.
Í spilaranum hér að ofan má sjá svipmyndir úr leiknum.