Gylfi Þór Sigurðsson er ekki í leikmannahópi Everton sem mætir Manchester United á Old Trafford klukkan 14 í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á eftir.
Gylfi bar fyrirliðabandið og spilaði allan leikinn í 3:1-sigri Everton gegn Chelsea um síðustu helgi sem var jafnframt fyrsti leikur bráðabirgðastjórans Duncans Fergusons. Hann er hins vegar einn fjögurra leikmanna sem eru ekki með í dag en hinir eru Djibril Sidibé, Morgan Schneiderlin og Theo Walcott. Ekki liggur enn fyrir hvers vegna Ferguson hefur gert breytingarnar.
Lið Manchester United er óbreytt frá 2:1-sigrinum á nágrönnunum í Manchester City um síðustu helgi.
Uppfært kl. 14:09: Samkvæmt heimildum Sky Sports er Gylfi ekki með í dag vegna veikinda. Hann yfirgaf liðshótelið í morgun eftir að hafa verið slappur í nótt.
⚠️ TEAM NEWS IS IN! ⚠️
— Everton (@Everton) December 15, 2019
4⃣ changes
👍 Digne, Coleman and Mina passed fit
COYB! #MUNEVE pic.twitter.com/pl5H8tVBoz