Arsenal mistókst að vinna í þriðja leiknum í röð í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta er liðið gerði 1:1-jafntefli gegn nýliðum Sheffield United á Emirates-leikvanginum í dag.
Arsenal komst yfir snemma leiks en gestirnir kreistu fram stig með jöfnunarmarki seint í leiknum. Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.