Southampton heldur áfram að klífa töfluna í ensku úrvalsdeildinni og vann liðið góðan útisigur á Crystal Palace í London í kvöld, 2:0. Liðið er nú komið upp í níunda sæti deildarinnar með 31 stig en Palace er með 30 stig í 11. sætinu.
Ekki er mjög langt síðan liðið tapaði 0:9 fyrir Leicester, en á skömmum tíma hefur Southampton rétt úr kútnum svo um munar.
Svipmyndir úr leiknum má sjá hér fyrir neðan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.