Inter hafnaði lánsbeiðni frá Manchester United

Matias Vecino í leik með Inter gegn Napoli fyrr í …
Matias Vecino í leik með Inter gegn Napoli fyrr í þessum mánuði. AFP

Ítalska knattspyrnufélagið Inter Mílanó hefur hafnað beiðni Manchester United um að fá úrúgvæska miðjumanninn Matias Vecino lánaðan út þetta tímabil, samkvæmt Sky Italy.

Sky Italy segir að félögin hafi ekki náð samkomulagi um tilhögun lánssamnings fyrir leikmanninn sem hefur spilað 41 landsleik fyrir Úrúgvæ. Inter sé þess í stað komið í viðræður við Napoli um leikmannaskipti sem væru fólgin í því að Vecino gengi til liðs við Napoli og Inter fengi brasilíska miðjumanninn Allan í staðinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert