Enska knattspyrnufélagið West Brom tók þátt í að minnast George Floyd, sem lést eftir harkalega meðferð lögreglumanns við handtöku í Bandaríkjunum á dögunum, á samfélagsmiðlum sínum og var snöggt að svara ósáttum stuðningsmanni.
Samfélagsmiðlar hafa bókstaflega logað eftir að mótmælaalda braust út í Bandaríkjunum í kjölfar andlátsins og hefur fólk um allan heim sýnt mótmælunum stuðning með því að birta myndir af svörtum bakgrunni undir myllumerkinu Black Out Tuesday.
Einn ósáttur netverji svaraði færslu West Brom á Twitter: „Aumkunarvert. Afturkallið ársmiðan minn. Bless,“ en félagið var snöggt að svara: „Þín verður ekki saknað.“
#BlackOutTuesday ⬛️ pic.twitter.com/REfZCFkQy6
— West Bromwich Albion (@WBA) June 2, 2020
You won’t be missed.
— West Bromwich Albion (@WBA) June 2, 2020