Chelsea er aftur komið upp í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta eftir sannfærandi 3:0-sigur á Watford á Stamford Bridge í kvöld. Voru Chelsea-menn mun sterkari frá upphafi til enda.
Chelsea er með 57 stig, tveimur stigum meira en Manchester United sem tók fjórða sætið tímabundið fyrr í dag.