„Ég er stoltur af því hvað þetta lið gerði í kvöld,“ sagði sigurreifur Scott Parker, knattspyrnustjóri Fulham, eftir 2:1-sigur á á Brentford í úrslitaleik umspilsins í B-deildinni á Wembley í kvöld. Grípa þurfti til framlengingar þar sem lærisveinar Parkers höfðu betur.
„Við, sem hópur, vorum í vandræðum andlega fyrir ári síðan og hugarfarið var ekki rétt,“ sagði Parker og vísaði þar til þess að lið Fulham féll úr úrvalsdeildinni á síðasta ári en snýr nú beint upp aftur.
„Ég hef ýtt þessum strákum áfram og í kvöld sá ég lið sýna hvað í því býr, ég hef verið að ýta þeim áfram í tólf mánuði.“