Chelsea í engum vandræðum á Turf Moor

Hakim Ziyech skorar hér fyrsta mark leiksins í dag.
Hakim Ziyech skorar hér fyrsta mark leiksins í dag. AFP

Chelsea lenti ekki í vandræðum með Burnley á Turf Moor í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Gestirnir unnu 3:0-sigur en Hakim Ziyech átti stórleik fyrir Lundúnaliðið.

Ziyech kom Chelsea yfir á 26. mínútu með því að skora í öðrum leiknum í röð og Kurt Zouma tvöfaldaði forystuna eftir rúmlega hálftíma leik. Ziyech lagði svo upp þriðja markið en það skoraði Kurt Zouma.

Chelsea er nú með 12 stig í 4. sæti deildarinnar en Burnley er áfram á botninum og bíður eftir sínum sigurleik, liðið er með eitt stig eftir sex leiki. Jóhann Berg Guðmundsson var ekki í leikmannahópi liðsins í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert