Á förum frá United

Juan Mata hefur ekki átt fast sæti í liði Manchester …
Juan Mata hefur ekki átt fast sæti í liði Manchester United á tímabilinu og einungis byrjað fjóra leiki í ensku úrvalsdeildinni. AFP

Juan Mata, sóknarmaður enska knattspyrnufélagsins Manchester United, mun yfirgefa félagið í sumar þegar samningur hans rennur út.

Það er Manchester Evening News sem greinir frá þessu en Mata er orðinn 32 ára gamall og verið í aukahlutverki hjá félaginu undanfarin tvö tímabil.

Mata gekk til liðs við United frá Chelsea árið 2014 en það var David Moyes sem keypti hann í  janúarglugganum fyrir 37 milljónir punda.

Spánverjinn varð bikarmeistari með United árið 2016, deildabikarmeistari 2017 og þá vann hann Evrópudeildina með liðinu 2017.

Alls á hann að baki 267 leiki í öllum keppnum þar sem hann hefur skorað 50 mörk og lagt upp önnur 47.

Þá á hann að baki 41 landsleik fyrir Spán en hann er uppalinn hjá Real Madrid en sló í gegn með Valencia á árunum 2007 til 2011. Hann hefur verið orðaður við endurkomu til Spánar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert