Mega æfa með liðinu á ný

Brendan Rodgers ræðir við James Maddison.
Brendan Rodgers ræðir við James Maddison. AFP

Brendan Rodgers knattspyrnustjóri Leicester hefur gefið þeim James Maddison, Ayoze Perez og Hamza Choudhury leyfi til að hefja æfingar með liðinu á nýjan leik frá og með deginum í dag.

Þremenningarnir voru settir í bann frá æfingum aðalliðsins um síðustu helgi eftir að upp komst um veisluhöld þeirra nokkrum dögum áður þar sem þeir brutu sóttvarnareglur.

Þeir fengu ekki að spila með Leicester í leiknum mikilvæga gegn West Ham á sunnudaginn þar sem liðið tapaði 3:2 eftir að hafa lent 3:0 undir og missti dýrmæt stig í slagnum um sæti í Meistaradeild Evrópu.

„Ég var sjálfur gríðarlega vonsvikinn með þetta framferði þeirra, en þeir gerðu mistök og þau hafa verið afgreidd. Nú heyrir þetta fortíðinni til. Strákarnir koma inn í hópinn á ný og við gerum okkur klára fyrir undanúrslitaleikinn," sagði Rodgers við Sky Sports en Leicester mætir Southampton í undanúrslitum bikarkeppninnar um næstu helgi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert