Sannfærandi útisigur United

Anthony Elanga fagnar fyrsta marki leiksins.
Anthony Elanga fagnar fyrsta marki leiksins. AFP

Manchester United vann öruggan 3:1-útisigur á Brentford er liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Öll mörkin komu í seinni hálfleik.

Fyrri hálfleikur var með rólegra móti. United var mikið með boltann en Brentford skapaði sér hættulegri færi en David De Gea stóð vaktina vel í marki United.

Gestirnir frá Manchester voru töluvert betri í seinni hálfleik og Svíinn ungi Anthony Elanga skoraði fyrsta markið á 55. mínútu með skalla af stuttu færi eftir að hafa tekið skemmtilega á móti boltanum.

Sjö mínútum síðar tvöfaldaði Mason Greenwood forskotið er hann og Bruno Fernandes sluppu einir í gegn og Fernandes sendi á Greenwood sem skoraði auðvelt mark. Varamaðurinn Marcus Rashford, sem kom inn á í staðinn fyrir Greenwood, bætti svo við þriðja markinu á 78. mínútu er hann slapp einn í gegn.

Ivan Toney minnkaði muninn er hann skoraði af stuttu færi eftir langt innkast en nær komust heimamenn ekki og öruggur sigur United staðreynd.

United er í sjöunda sæti með 35 stig og Brentford í 14. sæti með 23 stig. 

Brentford 1:3 Man. Utd opna loka
90. mín. Bruno Fernandes (Man. Utd) á skot sem er varið Fer illa með dauðafæri. Sleppur einn í gegn en vippar boltanum laflaust á Lössl sem grípur boltann auðveldlega.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert