Pickford átti markvörslu mánaðarins

Jordan Pickford.
Jordan Pickford. AFP/Oli Scarff

Jordan Pickford, markvörður Everton í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu karla, átti bestu markvörslu septembermánaðar þegar hann varði glæsilega frá Darwin Núnez í Liverpool-borgarslagnum í byrjun mánaðarins.

Undanfarin ár hefur enska úrvalsdeildin útnefnt leikmann og knattspyrnustjóra hvers mánaðar en á þessu tímabili hefur markvörslu mánaðarins og marki mánaðarins verið bætt við.

Vörslu Pickford má sjá hér og kemur eftir 1:05 mínútur í myndskeiðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert