Væntanlegar breytingar á hetju í LoL

Ævintýralegi kentárinn, Lillia.
Ævintýralegi kentárinn, Lillia. Grafík/Riot Games

Starfsmaður Riot staðfestir væntanlegar breytingar á hetju í leiknum League of Legends, Lillia, sem er eins konar hreindýrakentár gædd töfrahæfileikum. Breytingarnar eiga að draga lítillega úr kröftum hennar á fyrstu stigum leiksins. Úthald hetjunnar hins vegar eykst ásamt því að hún skalast betur upp þegar líður á leikinn.

Ástæðan fyrir breytingunum er til þess að auka sigurhlutfall hetjunnar þegar leikmaður skráir sig til leiks án liðs (e. solo queue).

Svarar almenningi varðandi breytingarnar

Leikjahönnuðurinn Daniel Emmons „Maxw3ll“ tísti frá þessu í gær og hefur verið að svara spurningum og öðrum hugleiðingum frá almenningi varðandi málið.


 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert