Ákváðu hvenær keppni færist yfir í nýja leikinn

Stórmót fer fram í París í maí.
Stórmót fer fram í París í maí. Skjáskot/Blast

Stórmótið í Counter-Strike sem fer fram í París í maí verður það síðasta þar sem notast er við núverandi útgáfu leiksins og verður fyrsta stórmótið sem styðst við Counter-Strike 2 haldið í mars árið 2024.

Þetta þýðir að engin stórmót verða á dagskrá það sem eftir er af árinu og einungis minni mót. Valve tilkynnti þessar fréttir á Twitter-síðu sinni og með því gaf Valve rafíþróttaliðum tímalínu þess efnis hvenær er tímabært að færa sig yfir í nýja leikinn og æfa sig þar vel áður en keppni hefst á ný.

Counter-Strike 2 var kynntur á dögunum en einungis útvaldir fá að prófa leikinn núna og kemur hann út fyrir almenning í sumar. Hérna fyrir neðan er hægt að lesa sér til um útgáfuna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert