[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Formúla

Mót

14.3. Barein
28.3. Ástralía
4.4. Malasía
18.4. Kína
9.5. Spánn
16.5. Mónakó
30.5. Tyrkland
13.6. Kanada
27.6. Evrópukapp.
11.7. Bretland
25.7. Þýskaland
1.8. Ungverjaland
29.8. Belgía
12.9. Ítalía
26.9. Singapore
10.10. Japan
24.10. Kórea
7.11. Brasilía
14.11. Abu Dhabi

Spurt er

Finnst þér nýju reglurnar bjóða upp á meiri spennu í keppni?
Alonso og Massa við frumsýningu Ferraribílsins sem óttast er að sé ekki nógsamlega hraðskreiður.

Alonso og Massa við frumsýningu Ferraribílsins sem óttast er að sé ekki nógsamlega hraðskreiður.

Íþróttir | mbl.is | 29.1.2010 | 20:11

Ferraribíllinn hæggengur?

Breska blaðið The Times segir að Ferrari sé þegar að vinna að annarri uppfærslu keppnisbíls ársins, svonefndri B-útgáfu hans, því bíllinn sem það hefur frumsýnt sé ekki nógu hraðskreiður.

Times vitnar til sögusagna í ítölskum fjölmiðlum í þessa veru þar sem fjallað sé um útreikninga á afkastagetu bílsins eftir prófanir í vindgöngum.

Þar segi að forsvarsmenn Ferrari óttist að bíllinn muni ekki reynast eins góður og væntingar hafi staðið til. Og það þrátt fyrir að þróun bílsins í fyrra hafi verið hætt á miðri vertíð svo tæknisveitin gæti einbeitt sér að 2010-bílnum.

Þá segir fyrrverandi Ferrariþórinn Gerhard Berger við svissneska blaðið Blick, að jafnvel þótt Ferrari hafi fengið Fernando Alonso til liðs við sig sé „Ferraripakkinn“ ekki eins öflugur nú og í tíð Michaels Schumacher.

Hann segir liðið nú sakna sárt þeirra Jean Todt, Ross Brawn og hönnuðarins Rory Byrne. „Án rétta mannskapsins lenda menn fljótt í ógöngum,“ segir Berger.


© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Íþróttir / Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 19. mars
Fimmtudaginn 18. mars
Miðvikudaginn 17. mars
Þriðjudaginn 16. mars
Mánudaginn 15. mars
Sunnudaginn 14. mars
Laugardaginn 13. mars
Föstudaginn 12. mars
Fimmtudaginn 11. mars
Miðvikudaginn 10. mars
Þriðjudaginn 9. mars
Mánudaginn 8. mars