Button: „Spenntari en nokkru sinni áður“
Heimsmeistarinn Jenson Button skipti um lið eftir síðasta keppnistímabil og segist aldrei hafa verið jafn spenntur að byrja nýja vertíð sem nú, eftir að hafa gengið til liðs við McLaren.
Button varð meistari sem liðsmaður Brawn í fyrra en viðræður um endurnýjun samninga báru ekki ávöxt og hann ákvað að taka nýrri áskorun með því að keppa fyrir McLaren við hlið landa síns og meistara 2008, Lewis Hamilton.
„Ég hef átt annríkt í janúar við að falla inn í liðið. Að fara til nýs liðs er alltaf erfiðleikum bundið. Breytingin er mikil og menn eiga erfitt uppdráttar til að byrja með. En mér hefur verið tekið virkilega vel og andrúmsloftið er mjög gott. Og það er gaman að sjá bílinn í fullri og endanlegri gerð,“ sagði Button við frumsýningu McLaren.
„Ég hlakka mjög til vertíðarinnar. Við leiðumst ekki út í dagdrauma, framundan eru umfangsmiklar bílprófanir, erfið vinna sem inna þarf að hendi áður en vertíðin gengur í garð. Ég er fullur tilhlökkunar, spenntari en nokkru sinni fyrr í aðdraganda fyrsta móts. Áskorunin sem bíður mín er risastór og ég hlakka til að takast á við hana,“ bætti hann við.
Button segir það hafa blásið sér aukinn kjark í brjóst að hafa gengið til liðs við McLaren. Hvötin til að spjara sig sé líka meiri. Eftir að hafa unnið titil ökuþóra hafi verið nauðsynlegt að öðlast nýja áskorun. Því hafi hann gengið til liðs við McLaren.
„Þegar að fyrsta móti kemur ætlast ég til að við þurfum á engum afsökunum að halda. Og tryggja að ég verði 100% klár í slaginn. Ég ætla mér að vera samkeppnisfær í fyrsta móti, í Barein,“ sagði Button.
Og hann leggur áherslu á að þeir Hamilton vinni vel saman fyrir liðið þrátt fyrir ramma innbyrðis keppni. „Öðru vísi eigum við ekki breskan heimsmeistara við vertíðarlok. Það kemur í ljós við vertíðarlok hvað gerist, og hvor hefur staðið sig betur í mótunum 19 í ár,“ sagði Button.
Til baka










