Kobayashi mun keyra djarft
Kamui Kobayashi segist munu halda uppteknum hætti frá því í lokamótunum tveimur í fyrra og keyra djarft er hann hefur keppni með Sauberliðinu á komandi keppnistíð.
Japanski ökuþórinn vakti mikla athygli er hann leysti Timo Glock af hólmi hjá Toyota í lokaumferðunum í fyrra. Ók hann djarft og stóð sig vel í návígjum við sér miklu reyndari ökumenn, m.a. við Jenson Button hjá Brawn bæði í Abu Dhabi og í Brasilíu.
Tókst honum meir að segja að vinna sig fram úr Button í síðarnefnda mótinu.
„Þetta er ekkert sérstakt, bara aksturstækni mín. Ég mun halda áfram með sama hætti, án þess þó að klessa,“ sagði Kobayashi við frumsýningu Sauberbílsins.
Hann er bjartsýnn á að hann mæti öflugri til leiks í ár þar sem hann hefur haft veturinn til undirbúnings, í stað þess að vera kallaður til leiks á síðustu stundu og nær fyrirvaralaust. Fyrir mótin tvö í fyrra hafði hann ekki getað undirbúið sig með æfingarakstri. Öldin verði önnur nú og mikið um æfingarakstur áður en vertíðin gengur í garð.
Kobayashi vill ekki vera með spádóma fyrir vertíðina áður en bílprófanir eiga sér stað, en segir það markmið sitt að verða fyrsti japanski ökuþórinn sem vinnur kappakstur í formúlu-1.
Til baka









