Massa fljótastur á fyrsta bílprófanadeginum
Felipe Massa hjá Ferrari lét ađ sér kveđa er hann mćtti til fyrsta opinbera verkefnisins á vettvangi formúlu-1 frá ungverska kappakstrinum í fyrra. Setti hann besta brautartíma dagsins viđ reynsluakstur í Valencia í dag.
Um var ađ rćđa fyrstu opinberu bílprófanalotu formúluliđanna í ár. Massa lét bíđa eftir bestu tímum ţar til á síđustu mínútum dagsins. Sýndi hann ađ hann hefur engu gleymt en hann slasađist alvarlega í ungverska kappakstrinum í júlí í fyrra.
Hann átti besta tímann framan af degi en eftir hádegi ruddi Pedro de la Rosa hjá Sauber honum úr efsta sćtinu á lista yfir hröđustu hringi. Á lokamínútunum endurheimti Massa aftur toppsćtiđ en de la Rosa átti nćst besta hring ţegar upp var stađiđ.
Kom frammistađa de la Rosa á óvart og einnig geta Sauberbílsins, en liđiđ hefur ekki eins öfluga bakhjarla sem BMW undanfarin ár.
Michael Schumacher hefur heldur engu gleymt og var fljótur ađ komast í tćri viđ topptímana eftir ađ hann tók viđ akstri Mercedesbílsins af Nico Rosberg eftir hádegi.
Á endanum varđ hann ađeins 0,4 sekúndum frá tíma Massa en sinn besta hring setti Schumacher undir lok ćfingarinnar er brautartímar ökumanna tóku skjótum og miklum breytingum. Útaf fyrir sig eru ćfingatímar lítt til samanburđar fallnir en engu ađ síđur ţykir Schumacher ekki verra ađ hafa náđ talsvert betri tíma en Rosberg.
Toro Rosso glímdi viđ vanda í gírkassa í nýsmíđuđum bíl sínum og náđi liđiđ ţví ekki mörgum hringjum.
Robert Kubica var ánćgđur međ ćfingar dagsins ţótt besti tími hans vćri sá lakasti. Allt hefđi gengiđ eins og í sögu en á morgun myndi hann prófa sig áfram međ jafnvćgiđ í bílnum. Hann sagđi mjórri framdekk en áđur ćttu eflaust eftir ađ leiđa til aukinnar undirstýringar í hrađari beygjum.
Bestu brautartímar ökumanna urđu annars sem hér segir í Valencia í dag:
| Röđ | Ökuţór | Bíll | Tími | Hri. |
|---|---|---|---|---|
| 1. | Massa | Ferrari | 1:12.574 | 102 |
| 2. | de la Rosa | BMW | 1:12.784 | 74 |
| 3. | Schumacher | Mercedes | 1:12.947 | 40 |
| 4. | Rosberg | Mercedes | 1:13.543 | 39 |
| 5. | Paffett | McLaren | 1:13.846 | 86 |
| 6. | Barrichello | Williams | 1:14.449 | 75 |
| 7. | Buemi | Toro Rosso | 1:14.762 | 18 |
| 8. | Kubica | Renault | 1:15.000 | 69 |
Til baka











