Sauber frumsýnir C29
Sauberliðið frumsýndi keppnisbíl sinn, C29, í Valenciabrautinni á Spáni í gær, sunnudag. Varð með því þriðja formúlu-1 liðið til að svipta nýjum bíl hulunni. Ugga aftur úr kæliturni véarhússins svipar til útfærslu McLaren.
C29-bíllinn verður knúinn Ferrarimótor og er sá fyrsti sem Sauber teflir fram eftir brottfall BMW úr formúlu-1 í lok nýliðins árs. Peter Sauber, sem seldi liðið á sínum tíma til BMW árið 2005, er nú við stjórnvölinn á ný, eftir að hafa keypt liðið til baka af þýska bílafyrirtækinu.
Þótt Ferrarimótor verði í bílnum ætlar Sauber að halda BMW-tákninu í nafni liðsins, a.m.k. til að byrja með. Aðkoma þýska bílafyrirtækisins að liðinu er þó engin.
Ökumenn Sauber í ár verða Pedro de la Rosa og Kamui Kobayashi. Um tíma leit svo út að liðið gæti allt eins horfið af vettvangi formúlunnar þar sem BMW tilkynnti það ekki til þátttöku í ár í fyrrasumar. Brottför Toyota úr formúlunni varð liðinu til bjargar.
Bíll Sauber verður ennfremur í sömu litum og bílar BMW undanfarin ár. Hvítu svæðin eru þó meira áberandi nú þar sem liðið er með færri styrktaraðila en áður.
De la Rosa er í fullu starfi sem keppnisþór á ný eftir sjö ára dvöl í herbúðum McLaren sem reynsluökumaður enska liðsins. Telur Sauber sig eiga eftir að njóta mjög þeirrar miklu reynslu sem hann öðlaðist þar, hjá einu af toppliðum formúlunnar.
Kobayashi þreytti frumraun sína í formúlu-1 í fyrra er hann keppti í tveimur síðustu mótum ársins fyrir Toyota. Frammistaða hans þá varð til að hann var ráðinn til Sauber.
De la Rosa og Kobayashi hefja í dag reynsluakstur Sauberbílsins í Ricardo Tormo brautinni í Valencia.
Til baka











