Toro Rosso sýnir fyrsta bílinn sem það smíðar sjálft
Toro Rosso sýndi fulltrúum fjölmiðla keppnisbíl vertíðarinnar í ár í Valencia á Spáni í morgun. Er það fyrsti bílinn sem liðið smíðar sjálft. Ber hann tegundarheitið STR5.
Í ár koma til framkvæmda reglur sem skylda lið til að smíða sjálf bíla sína frá grunni en Toro Rosso hefur fengið bíla úr smiðju móðurliðsins Red Bull til þessa, eða undanfarin fjögur ár.
Franz Tost liðsstjóri segir um tímamót að ræða fyrir Toro Rosso. Hafi það verið mikil áskorun að byggja upp starfsemina innanhúss til að takast á við smíðaverkefnið. Í því sambandi varð að fjölga starfsmönnum um 80 og stækka bílsmiðjuna til að hýsa þá. Í heildina eru þeir nú um 200.
Þá keypti Toro Rosso vindgöng í Englandi af Red Bull og mun nota þau viðþróunarstarfið.Tost segir það markmið Toro Rosso að verða í hópi átta bestu liða á komandi keppnistíð.
Til stendur að frumaka nýja bílnum í Valencia í dag og kemur það í hlut Sebastien Buemi. Liðsfélagi hans í ár - eins og á seinni hluta síðustu keppnistíðar - verður Jamie Alguersuari.
Til baka










