Massa aftur fljótastur
Felipe Massa hjá Ferrari ók hrađast annan daginn í röđ viđ bílprófanir í Valencia á Spáni í dag, en ţar eru sjö formúluliđ viđ reynsluakstur nýrra keppnisbíla sinna.
Massa náđi besta hringnum á fyrstu klukkustund ćfinganna í morgun en eftir ţađ einbeitti hann sér ađ löngum aksturslotum. Einnig setti Kamui Kobayashi hjá Sauber sinn besta hring á fyrsta tímanum og reyndist ţađ annar besti tími dagsins.
Eftir ţví sem leiđ á daginn bötnuđu tímar annarra ökumanna jafnt og ţétt. Lewis Hamilton hjá McLaren mćtti til starfa hjá McLaren í dag og setti ţriđja besta tímann. Ók hann einnig í löngum lotum og hiđ sama gerđi Robert Kubica hjá Renault sem var tveimur brotum á eftir Hamilton ađ tíma.
Kubica setti sinn besta tíma á síđasta hálftímanum en Hamilton um miđjan dag.
Nico Rosberg var einn um akstur Mercedes í dag en Michael Schumacher tekur viđ af honum á morgun. Rubens Barrichello hélt áfram akstri fyrir Williams annan daginn í röđ.
Talsverđur fjöldi áhorfenda var í stúkum Valenciabrautarinnar í dag og gćr ađ fylgjast međ ćfingunum. Töldust ţeir vera 7.200 í gćr en á morgun er búist viđ ađ ţeir margfaldist ţví ţá ekur Fernando Alonso fyrir Ferrari. Tveir ađrir meistarar verđa ţá einnig í brautinni, Jenson Button og Schumacher.
Niđurstađa ćfingarinnar í dag varđ annars sem hér segir:
| Röđ | Ökuţór | Bíll | Tími | Hri. |
| 1. | Massa | Ferrari | 1:11.722 | 124 |
| 2. | Kobayashi | BMW Sauber | 1:12.056 | 96 |
| 3. | Hamilton | McLaren | 1:12.256 | 108 |
| 4. | Kubica | Renault | 1:12.426 | 119 |
| 5. | Rosberg | Mercedes | 1:12.899 | 119 |
| 6. | Barrichello | Williams | 1:13.377 | 102 |
| 7. | Buemi | Toro Rosso | 1:13.823 | 107 |
Til baka










