Verstappen fljótastur

Max Verstappen hjá Red Bull ók hraðast á fyrstu æfingu keppnishelgarinnar í Aserbaísjan rétt í þessu og liðsfélagi hans Daniel Ricciardo ók næsthraðast.

Verstappen var 0,4 sekúndum fljótari með hringinn en Ricciardo, en 0,1 sekúndu á eftir honum,  með þriðja besta tímann, varð Sebastian Vettel hjá Ferrari. Sergio Perez hjá Force India klessti bíl sínum seint á æfingunni og varð það til þess að margir ökumenn gátu ekki bætt tíma sína.

Mercedesmennirnir Lewis Hamilton og Valtteri Bottas áttu fimmta og sjötta besta tímann, Esteban Ocon hjá Force India þann sjöunda, Felipe Massa hjá Williams þann áttunda, Kimi Räikkönen hjá Ferrari þann níunda og Daniil Kvyat hjá Toro Rosso þann tíunda besta.


 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert