Færist aftur um 40 sæti

Fernando Alonso hjá McLaren færist aftur um 40 sæti á rásmarkinu í Bakú vegna nýrra íhluta í aflrás bílsins sem settir hafa verið í hann fyrir æfinguna  og tímatökuna í dag.

Í fyrstu var talið að Alonso myndi færast aftur um 15 sæti - og einnig liðsfélagi hans Stoffel Vandoorne - en það hefur breyst vegna fleiri breytinga í aflrásinni en í fyrstu var gert ráð fyrir.

Takmörk eru fyrir því hversu marga íhluti ökumaður megi brúka á heilli keppnistíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert