Áttfaldi heimsmeistarinn í spretthlaupum, Usain Bolt, mun ræsa keppendur af stað á upphitunarhring bandaríska kappakstursins, sem fram fer í Austin í Texas á morgun.
Verður þetta liður í hátíðarhöldum á kappaksturshelginni í Austin. Bolt mun spranga um rásmarkssvæðið fyrir kappaksturinn ásamt hinum fræga tónlistarmanni Stevie Wonder.
Wonder mun koma fram á tónleikum við brautina en meðal hljómsveita sem fram koma er Prairie View A&M Band. Klappstýrur Dallas Cowboys munu drepa tímann milli atriða.