[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Íþróttablogg

skak.is

Skák.is | 5.9.2010
Áskell sigraði á Startmótinu 
Skák.is Starfsár Skákfélags Akureyrar hófst í dag með hinu árlega Startmóti. Ræddur var sá möguleiki að halda mótið utandyra, enda hefur verið einmuna blíða í Eyjarfirði undanfarna daga. Niðurstaða umræðnanna varð hinsvegar sú að hitinn úti væri of mikill til… Meira

Staða - Úrslit

Ísland
Önnur lönd
 Eiður Smári Guðjohnsen.

Eiður Smári Guðjohnsen. Reuters

Íþróttir | Morgunblaðið | 24.11.2006 | 05:30

Eiður Smári fær hæstu einkunn hjá Barcelona

Eiður Smári Guðjohnsen, fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu og leikmaður Evrópu- og Spánarmeistaraliðs Barcelona, fær hæstu einkunn sérfræðinga fréttavefjar Sky fyrir framlag sitt í 2:0-sigri liðsins á útivelli gegn Levski Sofia í Búlgaríu.

Eiður fær 8 í einkunn og til samanburðar fær Brasilíumaðurinn Ronaldinho 6 í einkunn og Ludovic Giuly, sem skoraði fyrsta mark leiksins, fær 7 í einkunn. Með sigrinum tekst Barcelona að halda í vonina um áframhaldandi þátttöku í Meistaradeild Evrópu en liðið mætir Werder Bremen á Spáni í lokaumferð A-riðils. Chelsea er efst í riðlinum með 10 stig og leikur gegn Levski á heimavelli í lokaumferðinni.

Werder Bremen er með 10 stig og nægir jafntefli gegn Barcelona í lokaleiknum en Evrópumeistararnir eru með 8 stig í þriðja sæti riðilsins.

Einkunnir leikmanna Barcelona á Sky eftir leikinn gegn Levski í Búlgaríu eru þannig:

Víctor Valdés 7, Carles Puyol 6, Rafael Marquez 6, Silvinho 5, Gianluca Zambrotta 7, Thiago Motta 6, Deco 7, Andres Iniesta 7, Ronaldinho 6, Ludovic Giuly 7, Eiður Smári Guðjohnsen 8.

Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Íþróttir / Fótbolti — Fleiri fréttir

Í gær
Laugardaginn 4. september
Föstudaginn 3. september
Fimmtudaginn 2. september