
Hermann Hreiðarsson (7) stjakar hér við leikmanni Norður Íra. Árni Torfason
Í bann fyrir að vera giftur
Bloggað um fréttina
-
Billi bilaðiSennilega jafn hættulegt og skriðtækling
-
RiddarinnÞað var rétt!!!!
-
Gísli Foster HjartarsonKonum fylgja vandræði!
-
Sóldís Fjóla KarlsdóttirAð vera giftur...!!!!!!
Hermann Hreiðarsson, fyrirliði og vinstri bakvörður íslenska landsliðsins, verður í banni í næsta landsleik, á móti Lettum á Laugardalsvelli laugardaginn 13. október.
Hermann fékk gult spjald þegar hann hugðist taka innkast út við hliðarlínu skammt frá hornfánanum vinstra megin. Fáir skildu hvers vegna dómarinn sýndi honum gula spjaldið enda virtist ekkert vera um að vera nema hvað hann bjó sig undir að taka innkastið.
„Ég fékk spjaldið fyrir að vera með giftingarhringinn á mér og nú verð ég í banni í næsta leik fyrir að vera giftur," sagði Hermann eftir leikinn, en hann fékk gula spjaldið á 65. mínútu leiksins.
Nánar í Morgunblaðinu í dag.
Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.
Til baka







Senda inn efni