Ronaldo klár í slaginn en Bale veikur

Cristiano Ronaldo er staðráðinn í að mæta Bayern.
Cristiano Ronaldo er staðráðinn í að mæta Bayern. AFP

Cristiano Ronaldo tók fullan þátt í æfingu Real Madrid í dag og virðist orðinn alveg klár í slaginn mikla við Bayern München í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu á miðvikudagskvöld.

Ronaldo hefur glímt við meiðsli líkt og varnarmaðurinn Sergio Ramos en greint var frá því á heimasíðu Real að báðir hefðu verið með á æfingunni í dag. Á æfinguna vantaði hins vegar Álvaro Arbeloa, Jesé og Gareth Bale en Bale er með flensu.

Leikmenn Real fengu frí í gær, á páskadag, en Ronaldo æfði þá sjálfur í samtals 5 klukkustundir, samkvæmt frétt AS. Hann kom þeim skilaboðum áleiðis á Twitter-síðu sinni að nú væru meiðslin að baki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert