Leikur Ronaldo í kvöld?

Cristiano Ronaldo, óvíst er hvort hann leikur með Real Madrid …
Cristiano Ronaldo, óvíst er hvort hann leikur með Real Madrid í kvöld gegn Bayern München í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar. AFP

Carlo Ancelotti, þjálfari Real Madrid, segir að hann muni ekki taka ákvörðun um það hvort Cristiano Ronaldo spili á móti Bayern München í kvöld fyrr en rétt fyrir leik.

Þessi tvö stórlið eigast við í fyrri leiknum í undanúrslitum Meistaradeildarinnar á Santiago Bernabeu í Madrid. Ronaldo hefur glímt við meiðsli og hefur ekki getað spilað síðustu fjóra leiki Real Madrid-liðsins.

„Cristiano hefur æft vel en við munum taka ákvörðun um það hvort hann spili á morgun. Hann spilar ef hann verður leikfær,“ sagði Ancelotti.

Ronaldo hefur leikið 41 leik fyrir Real Madrid í öllum keppnum í vetur og skorað 45 mörk. Þó að Madrídarliðinu hafi tekist að leggja Barcelona að velli í úrslitum spænska konungsbikarsins á dögunum án Ronaldo, er ljóst að stuðningsmenn liðsins liggja á bæn og vonast til þess að Portúgalinn verði leikfær gegn Bayern München í kvöld.

Leikur Real Madrid og Bayern München hefst klukkan 18.45 í kvöld.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert