Naumur sigur hjá Rosengård

Anja Mittag skoraði sigurmark Rosengård.
Anja Mittag skoraði sigurmark Rosengård. AP

Sænsku meistararnir Rosengård unnu í kvöld nauman sigur á Örebro, 1:0, í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu kvenna en eru á toppnum með fullt hús stiga, níu eftir fyrstu þrjá leikina.

Sara Björk Gunnarsdóttir fyrirliði Rosengård lék allan leikinn og Þóra B. Helgadóttir varði mark liðsiðns að vanda. Þýska landsliðskonan Anja Mittag skoraði eina mark leiksins strax á 11. mínútu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert